Blikar heimsóttu Valsara á Hlíðarenda í gærkvöldi í leik sem skipti bæði lið nokkuð miklu máli. Með sigri gat Breiðablik tryggt sér betur þriðja sætið og sett pressu á lið Fjölnis sem er tveimur stigum á undan Blikum í öðru sæti deildarinnar. Valsmenn gátu með sigrinum tryggt sig í þriðja sætið þar sem að þeir hefðu þá haft innbyrðis viðureignina á hina grænklæddu Blika.
Eftir sveiflukenndan fyrri hálfleik komust heimamenn fram úr gestunum í þriðja leikhluta en Blikarnir tóku forystuna aftur í lok fjórðungsins og hleyptu Val ekki fram úr sér það sem eftir lifði leiks. Sterkur leikur Breiðabliks í fjórða leikhluta tryggði þeim sigurinn, 81-88.
Þáttaskil
Í þriðja leikhluta tóku Valsarar fram úr Breiðablik með 13 stiga áhlaupi og breyttu stöðunni úr 46-52 í 59-52. Á þessum kafla var Urald King, erlendur leikmaður Vals mjög grimmur og skoraði 11 stig í röð. Erlendur leikmaður Blika, Tyrone Garland, tók sig þá til og byrjaði að laga stöðuna. Eftir að Breiðablik hafði staðist þessa atlögu heimamanna fóru þeir í gang og með grimmri vörn og beittum sóknum náðu þeir að komast yfir fyrir lok leikhlutans og gátu haldið út til loka leiksins.
Tölfræðin lýgur ekki
Blikar hittu úr 9 fleiri þriggja stiga skotum en Valur í leiknum sem eru 27 stig fleiri úr einum tölfræðiþætti. Þó að Valsarar hafi fengið 10 fleiri stig úr bæði vítaskotum og tveggja stiga skotum (20 stig á heildina) þá var það ekki nóg til að bæta upp fyrir alla þessa þrista. Sérstaklega ber að nefna þar sjóðheita byrjun Ragnars Jósefs Ragnarssonar hjá Breiðablik, en hann byrjaði leikinn á því að setja 4 af 5 fyrstu þriggja stiga skotunum sínum. Ragnar snöggkólnaði hins vegar eftir þetta þar sem að hann hitti ekki nema úr 2 af næstu 11 skotum sínum (þ.a. 1 af 9 í þriggja stiga skotum). Sókn Blika var líka meira einstaklingsbundin ef marka má tölfræðina, en þeir gáfu 10 færri stoðsendingar en Valsmenn; 14 á móti 24.
Hetjurnar
Þeir sem kláruðu leikinn fyrir Blika gerðu það í sameiningu í lokafjórðungnum. Tyrone Garland og Birkir Víðisson tóku að sér að skora í leikhlutanum þegar engin annar í liði gestanna virtist geta hitt utan af velli nema þeir tveir. Birkir var rosalega beittur í leikhlutanum, en hann átti ekki einn neikvæðan tölfræðiþátt allan fjórðunginn og endaði með 12 í framlag í leikhlutanum (skoraði 10 stig án þess að klikka á skoti ásamt því að stela bolta og verja skot). Þegar Valsmenn fóru síðan að brjóta á Blikum í lok leiksins var komið að Snorra Vignissyni, sem setti niður 5 af 6 vítaskotum sínum á lokamínútunni til að innsigla sigurinn.
Kjarninn
Sterk vörn Blika í lokaleikhlutanum og prýðilegar körfur Birkis og Ty skiluðu Kópavogspiltunum sinn 8. sigurleik og eilitla hefnd fyrir tapleik á heimavelli gegnum Val seinasta október. Valsarar þurftu að sætta sig við þriðja ósigur sinn á tímabilinu.
Blikar hafa þar með tryggt sér þriðja sætið í 1. deild karla í bili og eru í ágætri stöðu til að leggja ennþá meiri pressu á annað sætið með sigri í næstu umferð. Þeir eiga einn leik eftir fyrir jólafrí, heimaleikur gegn Fjölni sem er eins og áður segir í 2. sæti í deildinni. Valsmenn eiga eftir að spila tvo leiki fyrir jólafríið, útileikur gegn Fjölni og heimaleikur gegn FSu. Sigur í þeim báðum gæti komið þeim aftur í baráttuna um heimavallarrétt í úrslitakeppni fyrstu deildarinnar.
Umfjöllun / Helgi Hrafn Ólafsson
Mynd / Bjarni Antonsson




