Heil umferð fór fram í Dominos deild kvenna í dag, einn leikur í 1. deildinni og einn í Maltbikarkeppni karla.
Keflavík komst aftur á topp Dominos deildarinnar með sigri á Skallagrím eftir að hafa verið í 2.-3. sætinu stutta stund, en fyrr í dag hafði Snæfell unnið Hauka og þar með komist á topp deildarinnar sökum tímamismunar á leik þeirra og viðureignar Keflavíkur og Skallagríms. Þá sigraði lið Stjörnunnar Val að Hlíðarenda og deilir nú 3.-4. sætinu með liði Njarðvíkur, sem að tapaði fyrir Grindavík fyrr í dag.
Þá sigraði lið Þórs frá Akureyri KR í Vesturbænum í 1. deild kvenna og er því komið í efsta sæti deildarinnar, ásamt Breiðablik. KR er einum sigurleik frá þeim í 3. sætinu.
Einnig sigraði lið Hauka B lið sitt og er þar með komið áfram í 8 liða úrslit Maltbikarkeppni karla.
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna:
1. deild kvenna:
Bikarkeppni karla:




