Lykilleikmaður 9. umferðar Dominos deildar karla er leikmaður KR, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Í nokkuð þægilegum, öruggum, sigri hans manna á Keflavík skoraði hann 20 stig, tók 6 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður ÍR, Sveinbjörn Claessen, fyrir frammistöðu sína gegn Þór, leikmaður Þórs frá Akureyri, Darrell Lewis, fyrir frammistöðu sína gegn Njarðvík og leikmaður Stjörnunnar, Hlynur Bæringsson, fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík.
Lykilmaður 9. Umferðar?
— Karfan.is (@Karfan_is) December 2, 2016




