Frítt verður inn á leik ÍA og Hattar í kvöld í tilefni jólanna sem og verður leikurinn í beinni útsendingu á ÍA Tv. Leikurinn mikilvægur fyrir bæði lið, þar sem að heimamenn í ÍA freista þess að komast úr 8. sæti deildarinnar og upp í það 5. með sigri. Höttur er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar, en takist þeim ekki að sigra, eiga þeir á hættu að Fjölnir nái þeim að stigum í þessari umferð.
Hérna er viðburðurinn á Facebook
Fréttatilkynning :
Við í Körfuknattleiksfélagi ÍA langar að koma því á framfæri við ykkur að í kvöld gefum við frítt inn á leik ÍA vs. Höttur í tilefni jólanna. Auk þess gefa krakkarnir okkar í minniboltanum ágóða sölu bleiku slaufunnar til góðs málefnis:
Eitt af því sem við leggjum upp með hjá Körfuknattleiksfélagi ÍA er að láta gott af okkur leiða. Viljum ekki bara taka heldur líka gefa til baka. Þetta á við alveg ofan frá meistaraflokki niður í minniboltann. Því ákváðum við í tilfeni jólanna að hafa frítt inn á leik okkar í kvöld auk þess sem við notum tækifærið til að heiðra yngriflokka okkar sem léku á öllum sínum mótum í október og nóvember með Bleiku & bláu slaufuna á búningum sínu. Þau hafa nú selt sínar slaufur og er komið að því að gefa ágóða sölunnar í gott málefni. Í ár eru það Englaforeldra á Akranesi sem hjóta styrkinn og vonum við að hann komi að góðum notum.






