Stjarnan sigraði Hauka með 70 stigum gegn 67 í 9. umferð Dominos deildar karla. Stjarnan heldur því í við hin toppliðin þessa umferðina, en bæði Tindastóll og KR unnu leiki sína í gær svo að liðin eru jöfn í 1.-3. sæti deildarinnar með 16 stig. Haukar eru í 7.-11. sæti deildarinnar
Betri byrjun
Haukar byrjuðu leik kvöldsins mun betur en gestirnir. Voru 9 stigum, 18-9 yfir eftir 1. leikhluta. Miklu munaði þar Um framlag Sherrod Wright sem var með 11 stig og 3 fráköst á þessum fyrstu mínútum leiksins. Í örðrum leikhlutanum náði Stjarnan aðeins að vinna niður forskot heimamanna og þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var munurinn aðeins 4 stig, 38-34.
Vandræði
Byrjunarliðsmenn Hauka voru þó í vandræðum í byrjun leiks. Þar sem að í 1. leikhluta meiðist Finnur Magnússon og Haukur Óskarsson fær sína fjórðu villu í byrjun 2. leikhlutans. Finnur kom þó aftur á völlinn og setti nokkrar körfur, leit ekki út fyrir að vera mikið meiddur eftir að hann kom aftur inn á. Haukur hinsvegar kom aftur inn á völlinn og var snöggur að ná sér í 5. villuna, spilaði aðeins 9 mínútur í heildina. Ofan á öll þessi vandræði vantaði Kristján Sverrisson einnig í lið Hauka í kvöld.
Kjarninn
Þó Haukar hafi byrjað leikinn mun betur og leitt lungað úr honum, þá var þrautseigja Stjörnumanna algjör. Það mesta sem Haukar komust frammúr í leiknum voru 14 stig, fyrir Stjörnuna voru það 5 stig og þeir unnu bara með 3. Ljóst er að ekki skal vanmeta þetta Stjörnulið þó að það sé oft á tíðum í ansi knöppum dansi gegn verri liðum.
Vendipunkturinn
Kom í raun ekki fyrr en undir tvær mínútur voru eftir af leiknum. Þá jafnar fyrst Devon Austin leikinn, 65-65, með þriggja stiga skoti. Haukar fara í sókn þar sem að Breki gylfason klikkar á skoti, Stjarnan fer upp völlinn aftur og þá setur Justin Shouse annan þrist og kemur Stjörnunni 3 stigum yfir 65-68. Þetta virtist vera leikurinn. Að lokum fór svo að Stjarnan sigraði með 3 stigum 67-70
Hetjan
Í jöfnu liði Stjörnunnar var Hlynur Bæringsson bestur í kvöld með 17 stig og 12 fráköst á þeim 36 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Umfjöllun / Davíð Eldur
Mynd / Bára Dröfn




