spot_img
HomeFréttirÞór réð ekki við Keflavík

Þór réð ekki við Keflavík

 

Nú í kvöld mættust Þór og Keflavík í Höllinni í Dominos deild karla. Fyrir leikinn voru heimamenn í 5. sæti en gestirnir í því næst neðsta. Það segir þó lítið um gæði liðsins enda eru þeir með landsliðsmanninn Hörð Axel Vilbergsson og besta Bandaríkjamann deildarinnar, Amin Stevens innanborðs.

 

 

Gestirnir mættu af miklum krafti í leikinn og fóru þeir félagar Hörður og Stevens fremstir í flokki.

 

Keflvíkingar leiddu allan fyrri hálfleikinn og staðan í hálfleik var 41-51, þeim í vil. Í seinni hálfleik var svo það sama upp á teningnum. Alltaf þegar Þórsarar ógnuðu forystunni að einhverju leiti gáfu Keflvíkingar í, og juku bilið. Heimamenn réðu ekkert við Amin Stevens sem var gjörsamlega frábær. Í síðasta leikhlutanum sigldu gestirnir svo þægilegum sigri í höfn, 77-89.

 

Sigahæsti og besti leikmaður Þórs í leiknum var George Beamon, en hann skoraði 28 stig og tók 6 fráköst. Næstir komu Darrel Lewis með 18 stig og 10 fráköst, Danero Thomas með 17,  Þröstur Leó 6, Ingvi Rafn og Tryggvi Snær 4 hvor.

 

Hjá gestunum var, eins og áður sagði, manna bestur Amin Stevens, en hann átti rosalegan leik, skoraði 41 stig og tók 17 fráköst. Næstur var Hörður Axel með 20 stig og 7 stoðsendingar, Reggie Dupree 12 og 8 fráköst, Guðmundur Jónsson 8, Magnús Már Traustason 2 og Davíð Páll Hermannsson 2.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Umfjöllun / Aron Elvar Finnsson

Mynd / Skapti Hallgrímsson

Fréttir
- Auglýsing -