Lykilleikmaður 10. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Keflavíkur, Amin Khalil Stevens, en hann skoraði 41 stig og tók 17 fráköst á þeim 39 mínútum sem hann spilaði í sigri liðsins á Þór á Akureyri. Var þetta einn aðeins þriggja leikja það sem af er þar sem að leikmaður skorar yfir 40 stig í leik, hann sjálfur hafði í eitt skipti skorað 41 stig áður, en stigahæsta leik vetrarins á leikmaður Skallagríms, Flenard Whitfield, 43 stig. Þetta er í annað skiptið í vetur sem að Amin er lykilleikmaður umferðar.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður ÍR, Quincy Hankins-Cole, fyrir frammistöðu sína gegn Njarðvík og leikmaður Tindastóls, Christopher Caird, fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík.
Lykilleikmaður 10. umferðar?
— Karfan.is (@Karfan_is) December 9, 2016




