Dagblaðið Milwaukee Journal Sentinel greinir frá því að þýska fyrirtækið Mast-Jägermeister? virðist eitthvað vera ósátt með nýja útgáfu merkis NBA liðsins Milwaukee Bucks. Hafa þeir mótmælt því formlega að þeir fái að skrá það hjá einkaleyfastofu Bandaríkjanna. Nokkuð augljóst er að sjá líkindin í merkjunum tveimur, bæði innihalda þau dádýr sem virðist sýnt frá sama stað og í mjög svipuðum hlutföllum. Einkaleyfi þýska fyrirtækissins á sínu merki er frá árinu 1968 og hafa þeir því allan rétt á að setja einhver spurningamerki við þessa nýju útgáfu NBA liðsins. Fróðlegt verður að sjá hver lendingin verður í þessu máli.
Reyndar af myndum að dæma var síðasta útgáfa merkis þeirra mun líkara þýska vínframleiðandans, en ekkert var sagt eða gert í því þá:

Það er spurning hvort að Milwaukee Bucks þarf að fara aftur til níunda áratugarins og taka aftur upp þetta fallega körfuboltadádýr sem merkið sitt?

Óverri hugmynd væri kannski að einfaldlega fara í samstarf með þjóðverjunum:
Sponsdíll milli Jägermeistar og Bucks er mest borðleggjandi bissness í NBA, en bjöllusauðirnir hjá Bucks vilja frekar fá á sig kæru #mafs pic.twitter.com/lANo0oIJZY
— Baldur Beck (@nbaisland) December 11, 2016




