Lykilleikmaður 12. umferðar Dominos deildar kvenna er leikmaður Keflavíkur, Emelía Ósk Gunnarsdóttir. Í góðum 20 stiga sigri Keflavíkur á grönnum sínum frá Njarðvík skoraði Emelía 14 stig, tók 13 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 3 boltum. Þetta er í þriðja skiptið í vetur sem að Emelía er leikmaður umferðarinnar. Aðeins Carmen Tyson-Thomas hefur oftar verið það, eða í 4 skipti.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Skallagríms, Kristrún Sigurjónsdóttir, fyrir frammistöðu sína gegn Haukum, leikmaður Stjörnunnar Danielle Rodriguez, fyrir frammistöðu sína gegn Snæfell og leikmaður Vals, Mia Loyd, fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík.
Lykilleikmaður 12. umferðar? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) December 11, 2016




