spot_img
HomeFréttirEr Dirk Nowitzki að hætta?

Er Dirk Nowitzki að hætta?

 

Þýska goðsögnin Dirk Nowitzki er með samning út leikárið 2017-2018 við lið Dallas Mavericks. Í nýlegu viðtali við þýska tímaritið Bild sagðist kappinn það hinsvegar ekki alveg öruggt að hann næði að klára þann samning og mögulega myndi hann hætta í lok þessa tímabils.

 

"Ef það gengur ekki vel og mér er bókstaflega illt allstaðar, þá má vel vera að 2017 verði endirinn" 

 

"Áætlunin var að klára tímabilið 2018 þannig að ég hefði þá verið með Dallas í 20 ár, en þó ég hafi gert tveggja ára samning, þá þýðir það ekki að þetta tímabil verði ekki mitt síðasta"

 

Samkvæmt samning ræður hann hvort að hann tekur næsta ár með Dallas eða ekki, en geri hann svo er líklegt að Dallas borgi honum í kringum 25 miljónir dollara fyrir.

 

Síðasta tímabil hjá Dirk var flott. Þá var hann með 18 stig og 7 fráköst að meðaltali í leik og var stór ástæða þess að liðið komst í úrslitakeppnina. Þetta tímabilið er mjög ólíklegt að þeir komist í hana. Hafa unnið 6 leiki en tapað 18 það sem af er. Þar sem að Dirk hefur, sökum hásinarmeiðsla, aðeins getað tekið þátt í 5 leikjum, en í þeim hefur hann þó skorað 12 stig og tekið 6 fráköst að meðaltali í leik.

 

Fréttir
- Auglýsing -