Síðasta umferð Dominos deildar karla fyrir jól fer öll fram í kvöld. Mikill pakki er um miðja deildina þar sem að aðeins 4 stig skilja að liðið í 4. sæti og það sem er í 11. Heil fimm lið geta lent í því að vera í fallsæti yfir hátíðirnar. Einnig er toppslagur í Ásgarði þar sem að heimamenn í Stjörnunni taka á móti KR. Liðin eru (ásamt Tindastól) bæði búin að vinna 8 leiki og tapa 2 í vetur og eru því saman í efsta sætinu.
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Keflavík ÍR – kl. 19:15
Snæfell Þór Akureyri – kl. 19:15
Tindastóll Haukar – kl. 19:15 í beinni útsendingu Tindastóll Tv
Skallagrímur Grindavík – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport 2
Njarðvík Þór – kl. 19:15
Stjarnan KR – kl. 20:00 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport




