Þrír leikir fara fram í dag í Dominos deild kvenna. Þessir leikir eru þeir síðustu sem spilaðir verða þangað til eftir jól. Fyrir utan topplið Keflavíkur (sem vann Val í gær) geta öll liðin annaðhvort farið upp eða niður í töflunni eftir þessa umferð. Spennandi verður því að sjá hvernig leikir dagsins fara.
Snæfell getur endað í 2. eða 3. sæti
Skallagrímur getur endað í 2. eða 3. sæti
Stjarnan getur endað í 4. eða 5. sæti
Valur getur endað í 5. eða 6. sæti
Njarðvík getur endað í 4., 5. eða 6. sæti
Grindavík getur endað í 7. eða 8. sæti
Haukar geta endað í 7. eða 8. sæti
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna:
Snæfell Grindavík – kl. 15:00
Njarðvík Skallagrímur – kl. 15:30
Stjarnan Haukar – kl. 16:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport




