spot_img
HomeFréttirGrafvægingar í góðum gír

Grafvægingar í góðum gír

 

Breiðablik og Fjölnir áttust við í Smáranum í síðustu umferð fyrir áramót í 1. deild karla í kvöld. Gestirnir úr Grafarvoginum fóru með sigur af hólmi, 71-86, eftir að staðan hafði verið 37-46 í hálfleik, Fjölni í hag.

 

 

Af hverju vann Fjölnir?

Fjölnisstrákar lögðu grunninn að þessum glæsta sigri með frábærum 1. leikhluta. Þeir náðu að klippa erlenda leikmann Blika, Ty, út úr leiknum og gerði hann aðeins 2 stig í fjórðungnum en hann hefur verið þeirra aðal stigamaskína í vetur. Í leikhlutanum náðu Grafvæingar 15 stiga forskoti, 12-27, sem þeir létu aldrei af hendi í leiknum þrátt fyrir nokkuð áhlaup Blika.

 

Þeir sem flutu á feitum hval

Það má segja að nánast allt Fjölnisliðið ásamt þjálfarnum Hjalta séu sigurvegarar kvöldsins. Þeir komu gríðarlega vel einbeittir til leiks og nánast völtuðu yfir vankaða Blika í fyrsta leikhluta. Colin Pryor og Róbert voru í aðalhlutverki hjá Grafarvogspiltum en aðrir stóðu sig líka vel; sá fyrrnefndi gerði 31 stig og reif niður 14 fráköst og hinn síðarnefndi setti 22 stig, tók 10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. 

 

Þeir sem skripluðu á skötu

Heimamenn fá þann vafasama heiður og öngvu líkara en þeir hafi mætt viku of snemma í skötuveislu Breiðabliks. Það voru helst Sveinbjörn og Halldór sem voru með meðvitund í leiknum en aðrir geta mun betur og vita það manna best. Skotnýting Blika var slök, þeir fráköstuðu illa og voru oft út á þekju í varnarleiknum. Það var sorglegt að sjá frammistöðuna í kvöld því mjög góður stígandi hefur verið í liðinu að undanförnu.

 

Hvað gerist næst?

Með sigrinum skjótast Fjölnismenn upp í 2. sæti deildarinnar með 10 sigra og 3 töp og hafa nú unnið Blika í báðum viðureignum þeirra í vetur. Það gæti reynst dýrmætt þegar kemur að reikningsskilum deildarinnar með hækkandi sól á nýju ári. Blikar detta hinsvegar niður í 4. sæti með 8 sigra og 4 töp á bakinu.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Umfjöllun / Gylfi Gröndal

Myndir / Bjarni Antonsson

Fréttir
- Auglýsing -