Haukakonur komu í heimsókn í Garðabæ í 13. umferð Domino’s deildar kvenna í dag, þar sem þær mættu Stjörnunni. Fyrir leik voru Stjörnukonur í fjórða sæti deildarinnar en Haukar í því neðsta, svo ljóst var að heimakonur væru nokkuð sigurstranglegri. Eftir að heimakonur höfðu haft yfirburði nánast allan leikinn komu Haukastúlkur sér heldur betur inn í leikinn í lok fjórða leikhluta með ótrúlegri endurkomu og var leikurinn í járnum síðustu mínútuna. Stjörnukonur náðu þó að sigla sigrinum heim og fara sáttar í jólafrí eftir 68-65 sigur.
Endurkoman
Stjörnukonur voru ívið sterkari nánast allan leikinn og höfðu til að mynda fjórtán stiga forskot í hálfleik. Fátt virtist ætla að koma í veg fyrir þægilegan heimasigur í fjórða leikhluta, en þá tóku Haukakonur heldur betur af skarið. Dýrfinna Arnardóttir og Sólrún Inga Gísladóttir hreinlega röðuðu niður þristum fyrir Hafnfirðinga og var munurinn skyndilega orðinn eitt stig, 66-65, þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Stjörnukonur náðu þó að halda haus og sigla sigrinum í höfn.
Lykillinn
Stjörnukonur höfðu einfaldlega byrjað leikinn á meðan Haukar grófu sér nokkuð djúpa holu, sem reyndist þeim um megn að koma sér úr, þrátt fyrir glæsilega endurkomu undir lok leiks.
Hetjan
Auðvelt val að þessu sinni. Dani Rodriguez átti enn einn stórleikinn fyrir Stjörnuna, en hún skilaði þrennu í hús með 20 stigum, 15 fráköstum og 10 stoðsendingum.
Eftir leik
Stjörnukonur sitja í fjórða sæti deildarinnar eftir sigurinn, fjórum stigum á undan Val og Njarðvík. Haukar sitja hins vegar enn í neðsta sæti með 6 stig.
Umfjöllun, viðtöl / Elías Karl Guðmundsson
Mynd / Bára Dröfn
Viðtöl:




