spot_img
HomeFréttirNick Young með 8 þrista í tapi gegn Cavaliers

Nick Young með 8 þrista í tapi gegn Cavaliers

 

Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Fátt var þar sem að kom á óvart. Cleveland Cavaliers sigruðu Los Angeles Lakers í óþægilega jöfnum leik þar sem að meistararnir voru í allskonar vandræðum með Nick Young. Þá sigraði besta lið deildarinnar, Golden State Warriors, Portland Trail Blazers nokkuð örugglega, eða með 45 stigum. Mjög greinilega kveikt á öllu í sóknarleik Warriors þessa dagana, sem eru með árangurinn 24-4 eftir nóttina.

 

Mögulega einu óvæntu úrslitin í nótt komu frá Denver þar sem að heimamenn sigruðu New York Knicks. Það ætti þó ekki að koma neitt svakalega á óvart að lið með verri árangur af vesturströndinni sigri lið með betri árangur af austurströndinni. Vesturstrandarlið spila mun fleiri erfiða leiki.

 

Hérna er staðan í deildinni

 

Úrslit

Phoenix Suns 101 – 114 Oklahoma City Thunder

Indiana Pacers 105 – 90 Detroit Pistons

Charlotte Hornets 107 – 99 Atlanta Hawks

Los Angeles Lakers 108 – 119 Cleveland Cavaliers

Houston Rockets 111 – 109 Minnestota Timberwolves

New York Knicks 114 – 127 Denver Nuggets

Portland Trail Blazers 90 – 135 Golden State Warriors

Fréttir
- Auglýsing -