Verða Tindastóll Íslandsmeistarar? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 3 lið af 7 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 43%.
Það virðist því algjörlega uppi í loftinu hvort að lið Tindastóls nái að tryggja sér þann stóra, eða ekki? Í raun líklegra að þeir geri það ekki, en liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 2 töp, í öðru sæti er Stjarnan (jöfn að stigum) en ríkjandi deildar og Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára, KR, eru í 3. sætinu, sigurleik fyrir aftan.
2009-2010

Efsta lið deildar um jól Stjarnan
Íslandsmeistarar Snæfell
2010-2011

Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar KR
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Grindavík
Íslandsmeistarar Grindavík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Þór Þorlákshöfn
Íslandsmeistarar Grindavík
2013-2014

Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2014-2015

Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2015-2016

Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar KR
2016-2017

Efsta lið deildar um jól Tindastóll
Íslandsmeistarar ?




