Fimm leikir fara fram í dag í NBA deildinni. Hefð hefur skapast fyrir miklu umstangi í kringum leiki á jóladag í gegnum árin, þar sem að leikirnir eru sérstaklega valdir, liðin leika í sérstökum búningum, leikmenn frumsýna skó og fleira. Dagurinn í dag þar engin undantekning.
Allir eru leikirnir í beinni útsendingu í gegnum League Pass, þá er leikur Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en þar hittast einmitt fyrir liðin sem leikið hafa til úrslita í deildinni síðastliðin tvö tímabil.
Leikir dagsins:
Boston Celtics – New York Knicks – kl. 17:00
Golden State Warriors – Cleveland Cavaliers – kl. 19:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Chicago Bulls – San Antonio Spurs – kl. 22:00
Minnesota Timberwolves – Oklahoma City Thunder – kl. 01.00
Los Angeles Clippers – Los Angeles Lakers – kl. 03:30




