spot_img
HomeFréttirP.J. Alawoya til KR

P.J. Alawoya til KR

 

Íslandsmeistarar KR hafa samið við 203 cm, tæplega 100 kg framherjann P.J. Alawoya. Alawoya sem er 29 ára gamall, er reyndur leikmaður sem að hefur síðustu ár spilað í Japan, Þýskalandi og Slóvakíu. Þar áður, eða til ársins 2011, lék hann í Bandaríkjunum fyrir háskólalið McNeese State. Gert er ráð fyrir að hann muni þreyta frumraun sína í næsta leik KR, sem er gegn Þór komandi föstudag.

 

Myndbrot frá síðasta tímabili hans:

 

 

 

 

Fréttatilkynning:

Fréttir
- Auglýsing -