Skallagrímur
Í þriðja skiptið í sögu kvennakörfuboltans er Skallagrímur komið í undanúrslit í bikarkeppninni. Síðast árið 2009 og þar á undan 1998. Bæði árin var liðið nokkuð óvænt svo langt og töpuðust leikirnir ansi stórt. Annað er uppi á teningnum núna, liðið er efst í Dominos deild kvenna og hefur unnið níu leiki í röð.
Nú er tækifæri fyrir Skallagrím að komast í úrslitaleikinn í fyrsta skiptið og gera atlögu að fyrsta stóra titli félagsins frá 1964. Þrátt fyrir reynsluleysi félagsins í bikarkeppninni býr mikil reynsla í leikmannahópnum og hafa þær Sigrún og Guðrún Ámundadætur til að mynda unnið sjö bikarmeistaratitla samanlagt. Framundan er fyrsti vesturlandsslagurinn sem er svo seint í bikarkeppninni og ljóst að framundan er hörkubarátta. Barátta þjálfaranna verður einnig áhugaverð því Manuel Rodriquez hefur heldur betur sýnt að hann er engin auðkvisi þegar kemur að íþróttinni.
Undanúrslitaviðureign: Gegn Snæfell miðvikudaginn 8. febrúar kl. 20:00
Síðasti leikur þessara liða: 67-80 sigur þann 11. janúar síðastliðinn
Viðureign í 8 liða úrslitum: 78-42 sigur á KR
Fjöldi bikarmeistaratitla: 0
Síðasti bikarmeistaratitill: enginn
Viðtöl
Manuel Angel Rodriquez:
Guðrún Ósk Ámundadóttir:




