Andrée Fares Michelsson sem lék með Snæfell á síðasta tímabili er eftirsóttur af liðum um alla evrópu en þetta sagði hann við mbl.is á dögunum.
Andrée sem á íslenska móðir en kom frá Malbas í Malmö fyrir ári síðan en hann er uppalinn í Svíþjóð. Hann endaði með 11,7 stig að meðaltali á 22. mínútum fyrir Snæfell sem féll úr Dominos deild karla. Hann sýndi góða spretti og var einn af sterkari leikmönnum Snæfells.
Hann segir við mbl.is að lið frá Ítalíu, Svíþjóð og Íslandi hafi sýnt sér mikinn áhuga: „Það er ánægjulegt að finna þennan áhuga og ég hef eiginlega ekki hugmynd um hvað ég mun gera. Ég ræddi við Tindastól en það gekk ekki upp, og ég hef rætt mikið við Þór Akureyri. Það er spennandi kostur,“
Ljóst er að Þór Akureyri er í leikmannaleit en liðið hefur misst nánast alla byrjunarliðsleikmenn sína frá síðasta tímabili. Auk þess er Benedikt Guðmundsson farinn frá félaginu en Hjalti Þór Vilhjálmsson tók við liðinu í sumar. Hvort Andrée mun enda á Akureyri mun koma í ljós en hann sagði einnig að spennandi lið frá Ítalíu hefðu haft samband:
„Ég er bara að reyna að finna besta kostinn. Það væri gaman að spila í Svíþjóð og svo er líka mjög spennandi að fara til Ítalíu. Ég hef rætt við tvö lið í næstefstu deild þar, deildinni fyrir neðan eina albestu deild Evrópu,“ sagði Andrée í samtali við mbl.is.
Mynd – Tomasz Kolodziejski




