Íslenska U16 landsliðið lék í dag fyrsta leikinn í keppninni um 9. sæti B-deildar evrópumótsins. Andstæðingarnir voru Pólverjar og myndi sigurvegarinn komast áfram og keppa um 9-12 sæti deildarinnar.
Pólland var mun sterkara í fyrri hálfleik og leiddi að honum loknum 37-29. Íslendingum gekk illa að hitta skotunum sínum gegn sterkri vörn Pólverja. Ísland setti hinsvegar í gírinn í þriðja leikhluta og vann hann 20-11 og leiddi því með einu stigi er liðin héldu í loka leikhlutann. Íslenska liðið leiddi þegar tvær og hálf mínúta var eftir en 7-2 áhlaup Póllands í lokinn vann leikinn fyrir þá og lokastaðan 62-58.
Veigar Áki Hlynsson var sterkastur í liði Íslands í dag, hann endaði með 19 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar. Kolbeinn Gíslason kom þar á eftir með 8 stig og 7 fráköst.
Tapið þýðir að Ísland mun leika um 13-16 sæti mótsins. Ísland mætir þar Makedóníu kl 10:45 á morgun en liðið sem vinnur þann leik spilar hreinan úrslitaleik um 13 sætið gegn annað hvort Búlgaríu eða Portúgal á laugardaginn.




