Íslenska landsliðið lék sinn síðasta æfingaleik fyrir Eurobasket 2017 síðasta miðvikudag er liðið spilaði við ógnarsterkt lið Litháen í Litháen.
Ísland tapaði leiknum 62-84 en atkvæðamestur í íslenska liðinu var Tryggvi Snær Hlinason með 19 stig, 7 fráköst og 2 varin skot á 31 mínútum spiluðum.
Stærsta stjarna Litháa í dag er Jonas Valanciunas leikmaður Toronto Raptors. Hann lék gegn Tryggva meirihluta leiksins og má með sanni segja að NBA stjarnan hafi hrifist af Tryggva sem lét hann heldur betur hafa fyrir hlutunum.
„Hann er mjög góður. Hann er enn ungur en hefur frábæra hæð og mikið af hæfileikum.“ sagði Valanciunas um Tryggva Snæ eftir leikinn. „Það er undir honum komið hvað hann vill bæta við sinn leik. Núna er hann bara mikið efni. En ef hann bætir sig enn meira, gæti hann orðið virkilega góður leikmaður. Bara nú þegar getur hann leikið á háu stigi.“
Jonas Valanciunas praised Tryggvi Hlinason after Lithuania win vs Iceland 84:62. JV had double-double (14+11), Tryggvi 19+7 pic.twitter.com/hyLxVSqSd2
— Donatas Urbonas (@Urbodo) August 23, 2017




