Það fer heldur betur að styttast í stóru stundina. Í dag eru einungis 6 dagar í að Ísland hefji leik á lokamóti Eurobasket 2017 og það í annað skiptið í röð.
Þann 31. ágúst klukkan 13:30 á íslenskum tíma stígur Ísland á völlinn gegn sterku liði Grikklands. Það verður fyrsti leikur Íslands af fimm leikjum á átta dögum.
Karfan.is mun hita vel upp fram að móti og telja niður dagana til að stytta biðina. Í dag eru einungis 6 dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu. Leikmaður númer 6 hjá íslenska landsliðinu er Kristófer Acox. Leikmaður sem að var svo sannrlega í umræðunni um að komast með liðinu á lokamót EuroBasket 2015, en þá stóð skólinn hans, bandaríski Furman háskólinn, í vegi fyrir að svo gæti orðið.
Nú er Kristófer búinn með þann skóla (spilaði með KR í lok síðasta tímabils) og því ætti ekkert að standa í vegi fyrir því að hann fari með liðinu á lokamótið í Finnlandi nú í lok mánaðar. Kristófer spilaði með liðinu í undnkeppni þessa móts og þrátt fyrir að kappinn hafi oftar en ekki troðið tuðrunni eftirminnilega, er þó líklega eftirminnilegast þegar að forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heilsaði honum á sérstakan hátt.
Á þetta benti Kristófer með færslu á Twitter:
Allir i liðinu fengu "gangi ykkur vel" fra Guðna forseta, nema kallinn. Eg fékk "good luck". Annars geðveikur stuðningur i kvöld. Áfram _x1f1ee__x1f1f8_!
— kristofer acox (@krisacox) August 31, 2016
Eins og góðum forseta sæmir, baðst forsetinn forláts á þessu um leið og hann sá villu síns vegar:
Gangi þér vel, rosalega vel. Sorrí, fékk í kollinn hér nýr liðsmaður, ekki með íslensku 100%. My bad. Kemur ekki fyrir aftur 🙂
— Guðni Jóhannesson (@sagnaritari) September 1, 2016
Þó ekkert einsdæmi að forsetar séu ekki með sömu kveðjur til leikmanna liða, eins og Siggi Bryjólfs bendir á með þessari mynd af fyrrum forseta Bandaríkjanna, Barack Obama og landsliði þeirra:
forsetar mane pic.twitter.com/DvQHrCYSTN
— Siggi Brynjólfs (@SiggiBryn) August 31, 2016
Hér má sjá upptöku af atvikinu:
Hérna er umfjöllun Nútímans um atvikið




