HomeFréttirÓeining í herbúðum Grikklands

Óeining í herbúðum Grikklands

 

Lokamót EuroBasket hefst nú eftir 6 daga, þá mun íslenska landsliðið leika fyrsta leik í riðil sínum gegn Grikklandi. Þó Grikkland sé 16 sætum ofar en Ísland á styrkleikalista FIBA fyrir mótið, væri hægt að láta sér dreyma um að Ísland ætti möguleika á móti þeim, því einhver óeining virðist vera komin í hóp þeirra.

 

Fyrir það fyrsta fær besti leikmaður þeirra, einn besti körfuboltaleikmaður í heiminum í dag, Giannis Antetokounpo, ekki að leika með liðinu. Hann fær ekki leyfi frá NBA félagsliði sínu, Milwaukee Bucks, en gríska sambandið hefur sakað það um að vera í einhverjum feluleik með ástæður þess.

 

Þá herma nýjustu fréttir að liðið sé nú farið að slást innbyrðis. Gríski vefmiðillinn SDNA greinir frá því að leikmenn liðsins, þeir Giannis Bourousis og Nikos Pappas hafi í gærmorgun slegist á hóteli gríska landsliðsins með þeim afleiðingum að þriðji leikmaðurinn, Giannoulis Larentzakis meiddist á auga í látunum.

 

Ekki skal segja hversu mikið sé í gangi innan herbúða liðsins í raun og hver áhrif þessa verða á leik liðsins, en engu að síður getur þetta ekki þótt annað en slæmar fréttir af liðinu þegar ekki fleiri dagar eru í fyrsta leik.

 

 

Laskaður Larentzakis sést hér með liðsfélögum sínum eftir átök gærdagsins (Ljósmynd/SDNA)

Fréttir
- Auglýsing -