Landsliðsfyrirliðar liða á Eurobasket hafa sent forseta FIBA formlegt bréf þar sem kvartað er yfir nýjum opinberum bolta Eurobasket 2017. Frá þessu greinir RÚV.is í kvöld.
Leikmenn á mótinu eru óánægðir með boltann sem þeir segja verða blautur og sleipur þegar líður á leikinn. FIBA kynnti opinberan bolta mótsins fyrir rúmu ári síðan en boltinn er frá Molten. Þessi útgáfa er með „consistent touch” eða „stöðugt grip“.
Samtök landsliðsfyrirliða hafa sameinast um að skrifa forseta FIBA bréf þar sem þess er krafist að boltinn verði ekki notaður aftur að þessu móti loknu. Einnig hafa fyrirliðarnir beðið um að leikmenn verði með í ráðum þegar boltanir verða ákveðnir á stórmótum í framtíðinni.
Mynd / FIBA




