Fyrsta leik í A-riðli er lokið þar sem Slóvenía fór með góðan sigur að hólmi gegn Póllandi. Goran Dragic átti magnað leik fyrir Slóveníu í fyrsta leik á sínu síðasta stórmóti fyrir þjóðina.
Eftir jafnan leik framan fyrri hálfleik stakk Slóvenía af og náði góðri forystu í seinni hálfleik. Þá forystu gáfu þeir aldrei af hendi þrátt fyrir hetjulegar tilraunir Póllands til að koma til baka.
Goran Dragic var með 30 stig og 4 stoðsendingar í þessum leik og þá var Luka Doncic með 11 stig, 6 stoðsendingar og 8 fráköst á sínu fyrsta stórmóti með A-landsliði Slóveníu.
Slóvenía er með Íslandi í riðli en Ísland mætir einmitt Póllandi á laugardaginn í næsta leik sínum. Næsti leikur A-riðils er Ísland gegn Grikklandi og hefst leikurinn kl 13:30.
Mynd / FIBA




