Icelandic Glacial mótið klárast í dag með tveimur leikjum. Keflavík og Höttur mætast kl. 14:00 og í beinu framhaldi Njarðvík og heimamenn í Þór kl. 16:00. Fram að þessu hefur Þór unnið báða leiki sína í mótinu, Keflavík og Njarðvík einn, en Höttur er án sigurs.
Mikið er af nýjum leikmönnum hjá liðunum á þessu undirbúningsmóti, sem og voru þau öll komin með sína erlendu leikmenn fyrir það. Þó um æfingamót sé að ræða getur verið áhugavert fyrir þá sem þyrstir eru að sjá þessi lið fyrir fyrsta leik í Íslandsmótinu, að gera sér ferð í Þorlákshöfn og bera leikina augum.
Sunnudagur 17.september:
14:00 Höttur – Keflavík
16:00 Þór Þ – Njarðvík




