Keflavík sigraði Val fyrr í dag með fjórum stigum, 85-8, í æfingaleik í TM Höllinni í Keflavík. Fyrir gestina af Hlíðarenda var nýr erlendur leikmaður þeirra Lexi Peterson atkvæðamest, en hún skoraði 26 stig í leiknum. Fyrir heimastúlkur í Keflavík var það einnig nýr erlendur leikmaður Brittany Dinkins, sem dróg vagninn með 21 stigi. Þá bætti Emelía Ósk Gunnarsdóttir við 20 stigum, Thelma Dís Ágústsdóttir 10 og Þóranna Kika Hodge Carr 9.
Leiktíð beggja liða fer af stað þann 4. október, en þá munn Keflavík heimsækja Snæfell í Stykkishólm og Valur taka á móti nýliðum Breiðabliks á Hlíðarenda.




