Á þriðjudaginn mun KR verða fyrsta íslenska liðið í 9 ár til þess að taka þátt í Evrópukeppni þegar þeir mæta belgíska liðinu Belfius Mons heima í DHL Höllinni. Liðið á lokametrum sínum í undirbúning fyrir keppnina, en við kíktum við á æfingu hjá þeim í dag og ræddum við þjálfara liðsins, Finn Frey Stefánsson um verkefnið.
Leikur KR gegn Belfius Mons er á þriðjudaginn kl. 19:00, en klukkutíma áður, kl. 18:00 verður kveikt á grillinu fyrir stuðningsmenn.




