Slóvenía tryggði sér evrópumeistaratitilinn 2017 eftir sigur á Serbíu í æsilegum úrslitaleik Eurobasket 2017. Slóvenía var með góða forystu framan af leik enn Serbar komu sterkir til leiks í seinni háflleik og úr varð æsispennandi lokamínútur. Að lokum vann Slóvenía 93-85.
Fyrir mótið var Slóvenía í níunda sæti í kraftröðun FIBA rétt fyrir mót. Það má því segja að sigur Slóveníu sé óvæntur. Ekki nóg með það heldur vann liðið alla leiki sína á mótinu. Slóvenía var einnig með Íslandi í riðli í riðlakeppninni.
Fjölmiðlamenn völdu úrvalslið mótsins og MVP mótsins og lauk kosningu í þriðja leikhluta úrslitaleiksins. Í úrvalsliðinu voru: Goran Dragic – Slóvenía, Alexey Shvoed – Rússland, Bogdan Bogdanovic – Serbía, Luka Doncic – Slóvenía, Pau Gasol – Spánn.
Leikstjórnandinn og NBA stjarnan Goran Dragic var svo valinn mikilvægasti leikmaður (MVP) Eurobasket 2017 af fjölmiðlamönnum. Hann var með 22,6 stig, 5,1 stoðsendingu og 22 framlagsstig að meðaltali í leik. Hann var algjör leiðtogi í þessu liði Slóveníu sem vann sinn fyrsta evrópumeistaratitil í sögunni. Hann lýkur því landsliðsferli sínum sem evrópumeistari og besti leikmaður Eurobasket 2017 eða á besta mögulega máta.
The FIBA #EuroBasket2017 All-Star 5, presented by @TISSOT: @Shved23; @Goran_Dragic ; @LeaderOfHorde; @luka7doncic and @paugasol! pic.twitter.com/D94C4i9vqh
— FIBA (@FIBA) September 17, 2017




