Samkvæmt fréttatilkynningu körfuknattleiksdeildar Vestra, hefur félagið náð samningum við miðherjann Nemanja Knezevic um að leika með félaginu á komandi tímabili. Nemanja er þrítugur, 205 cm Svartfellingur sem sagður er búa yfir góðri tækni og miklum hreyfanleika.
Í fréttatilkynningu félgsins er sérstaklega tekið fram að þó Nemanja beri sama eftirnafn og annar leikmaður Vestra, Nebosja Knezevic, þá eru þeir ekkert skyldir. Þó þekktust þeir eitthvað áður, þar sem þeir koma báðir frá Vojvodina Novi Sad úr serbnesku annarri deildinni og léku þeir saman þar í þrjú ár.




