HomeFréttirRickell Preston í Breiðablik

Rickell Preston í Breiðablik

 

Breiðablik hefur samið við Rickell Preston fyrir komandi tímabil í Domino´s deildinni. Rickell er bakvörður frá Texas Rio Grande háskólanum í Bandaríkjunum. Rickell spilaði fyrir Keysborough Cougars í Ástralíu á síðasta tímabili þar sem hún skilaði 10,3 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

 

Rickell mun leysa stöðu skotbakvarðar í vetur og kemur hún til með að styrkja þann hóp sem fyrir er, en Breiðablik verða nýliðar í Domino´s deildinni á komandi tímabili. Hildur Sigurðardóttir þjálfari Breiðabliks hafði þetta að segja um leikmanninn:

 

„Rickell er góður varnarmaður og á að geta leyst nokkrar stöður á vellinum. Hún er með góða reynslu sem atvinnumaður og á eftir að hjálpa okkar unga og efnilega liði í baráttunni í vetur.“

 

 

Brot af því besta frá háskóladögum hennar:

Fréttir
- Auglýsing -