Margrét Kara Stuludóttir mun ekki leika í körfubolta á komandi tímabili en fyrrum landsliðskonan var í fæðingarorlofi síðasta tímabil en þar áður lék hún með Stjörnunni. Þetta staðfesti hún í tímabili við Karfan.is í gær.
Margrét Kara snéri aftur í íslenskan körfubolta með látum á fyrir þar síðasta tímabil eftir tveggja ára fjarveru. Þar sem hún var algjörlega frábær, með 11 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik, sem gáfu henni 17 framlagspunkta að meðaltali (6. hæsta í deildinni) fyrir nýliða Stjörnunnar. Spilamennskan dugði til þess að hún var valin aftur til þess að leika fyrir Íslands hönd árið 2016.
Margrét Kara er 28 ára framherji sem leikið hefur með KR, Keflavík og Njarðvík á ferlinum auk Stjörnunnar. Hún var valin besti leikmaður efstu deildar kvenna árið 2011 er hún lék með KR. Kara á að baki 15 landsleiki fyrir Íslands hönd og því einnig slæmar fréttir fyrir landsliðið að hún leiki ekki körfubolta næsta árið að minsta kosti.
Aðspurð um hvort skórnir góðu væru komnir endanlega uppí hillu sagði Kara hreinlega ekki verið búin að ákveða það endanlega. Hún vildi nýta tímann í að vera með fjölskyldu sinni en viðurkenndi þó að söknuðurinn til körfuboltans kæmi reglulega upp.
Stjarnan mun því ekki njóta krafta Köru á komandi tímabili en liðið hefur einnig misst þær Jónínu Þórdísi Karlsdóttur, Viktoríu Líf Steinþórsdóttur sem tekið sér pásu frá körfubolta, þá hefur Sigrún Karlsdóttir skipt yfir í Ármann og Hafrún Hálfdánardóttir verður ekki með Stjörnunni en hún er í barneignarleyfi. Stjarnan komst í fyrsta skipti í sögunni í úrslitakeppni meistaraflokks kvenna á síðasta tímabili og ætlar sér að halda áfram að skrifa sögubækurnar í Garðabænum.




