Skallagrímur tók á móti nágrönnum sínum úr Snæfell í æfingaleik fyrir 1. deild karla í kvöld í Borgarnesi. Bæði lið féllu úr Dominos deild karla á síðustu leiktíð og því staðráðin í að gera betur í ár.
Bæði lið og þjálfarar voru léttir á því og ekki að sjá að það sé mikil rígur á liðinum miðað við háttalag manna fyrir og eftir þennan æfingaleik.
Skallagrímur komu tilbúnir til leiks og byrjuðu fyrsta 34-21 þar sem Eyjólfur Ásberg Halldórsson fór vel af stað með 13 stig og liðið með 9 stoðsendingar í fyrstu 12 körfunum. Í öðrum leikhluti fór Snæfell að mæta Skallagrím framar en góð skotnýting og 7 sóknarfráköst Skallagríms í fyrri hálfleik hélt Snæfell nokkuð í skefjum. Snæfell var með 13 tapaða bolta í fyrri hálfleik en mesti munurinn á liðinum var 49-30 og var staðan 49-35 í hálfleik.
David Coville mætti með 17 stig í þriðja leikhlutanum og var þá kominn með 31 stig í heildina. Þar með lagaði Snæfell stöðuna í 76-66 eftir þriðja leikhluta.
Fjórði leikhluti fór 32 – 16 þar sem bæði lið fór að spila meira á bekkjarmönnum og tóku þar Skallagrímur framúr þar sem allir leikmenn enduðu á því að skora að minnsta kosti 1 körfu. Skallagrímur var með 53% skotnýtingu í leiknum og unnu frákastabaráttuna 51 – 38. Einnig var Skallagrímur með 32 stoðsendingar gegn 16 hjá Snæfell.
Hjá Snæfell var Christian Coville stigahæstur með 39 stig og bætti við það 7 fráköstum og 3 stolnum bolta. Hjá Skallagrím voru Eyjólfur og Zac Carter með 21 stig en sá síðarnefndi var einnig með 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Guðbjartur Máni Gíslason leikmaður Skallagríms stal senunni í lok leiks með hreyfingu leikssins og endaði með 10 stig, 3 fráköst, 1 stoðsendingu og 1 stolinn bolta.
Bæði lið hafa leikið nokkra æfingaleiki síðustu daga. Skallagrímur tapaði gegn Breiðablik 72-74 um helgina í Kópavogi. Snæfell lék tvo æfingaleiki á Akranesi um helgina gegn Vestra og ÍA. Snæfell tapaði fyrir Vestra 82-46 en vann ÍA 86-69. Vestri vann svo eins stigs sigur á ÍA 76-75.
Tölfræði leiksins má finna hér að neðan:

Mynd / Ómar Örn Ragnarsson
Umfjöllun / Skúli Guðmundsson




