New York og Oklahoma City hafa gert með sér samning sem sendir Carmelo Anthony frá Knicks til Thunder í skiptum fyrir Enes Kanter, Doug McDermott og valrétt í nýliðavalinu. Yfirvofandi vistaskipti Carmelo mikið verið á milli tannanna á fólki síðustu daga og mánuði, þar sem að fyrst var haldið að hann væri á leiðinni til Houston Rockets, áður en nú fyrir helgina Cleveland Cavaliers og Oklahoma City Thunder voru nefnd.
Oklahoma verið duglegir á leikmannamarkaði sumarsins, þar sem þeir náðu í stjörnuleikmanninn Paul George fyrr í sumar, en fyrir í liðinu er verðmætasti leikmaður síðasta árs, Russell Westbrook. Með komu Anthony bæta þeir því enn einni rósinni í hnappagatið fyrir næsta tímabil, þar sem verður að þykja ansi líklegt að þeir eigi eftir að veita bæði San Antonio Spurs og Golden State Warriors verðuga samkeppni um efstu sæti vesturstrandarinnar.




