HomeFréttirHöttur hafði Þór frá Akureyri í æfingaleik

Höttur hafði Þór frá Akureyri í æfingaleik

 

Höttur sigraði í gær Þór frá Akureyri í æfingaleik á Egilsstöðum, 77-75. Höttur verða á komandi tímabili nýliðar í Dominos deildinni á meðan að þetta er annað tímabil Þórs frá Akureyri þar. Í leikinn í gær vantaði nokkra leikmenn, Sindra Davíðsson og Hreiðar Vilhjálmsson fyrir Þór, en þá Mirko Stefán Virijevic, Bergþór Ægir Ríkharðsson og Hrein Gunnar Birgisson hjá Hetti.

 

Atkvæðamestu menn Þórs Akureyri voru þeir Marques Oliver með 28 stig og 14 fráköst, Ingvi Rafn Ingvason með 22 stig og 4 stolna bolta og Pálmi Geir Jónsson með 16 stig. Fyrir Hött var Taylor Stafford með 35 stig og 4 fráköst, André Michelsen með 14 stig og 4 fráköst og Gísli Hallsson með 11 stig og 5 fráköst.

 

Tölfræði leiksins má sjá hér fyrir neðan:

Fréttir
- Auglýsing -