Síðasta deildarleik Star Hotshots og Kristófer Acox í Filipseysku deildinni lauk í dag og framundan úrslitakeppnin. Með sigri á NLEX gat liðið tryggt sér fjórða sæti deildarinnar og náð heimaleikja rétt.
Svo fór í dag að Kristófer og félagar unnu góðan sigur 101-93. Kristófer var með enn eina tvöföldu tvennuna með 15 stig, 10 fráköst og 2 stolna bolta.
Hotshots þurfti einnig að treysta á að annað lið myndi vinna til að tryggja fjórða sætið og hafðist það. Fyrirkomulagið í Filippseyjum er annað en við þekkjum þar sem liðin sem fá heimaleikjarétt þurfa einungis að vinna einn leik til að komast áfram en liðið sem endar neðar þarf að vinna tvo.
Úrslitakeppnin hefst á þriðjudaginn og mætir Hotshots einmit NLEX sem þeir spiluðu við í dag. Komist Star Hotshots í undanúrslit þarf þrjá leiki til að komast áfram.




