spot_img
HomeFréttirKristófer maður leiksins er Hotshots tryggði sér í undanúrslit

Kristófer maður leiksins er Hotshots tryggði sér í undanúrslit

Star Hotshots tryggði sér í undanúrslit í Filippseyjum en Kristófer Acox leikur með liðinu. Liðið vann góðan 89-77 sigur á NLEX í átta liða úrslitum en einn sigur þurfti til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum. 

 

Kristófer var valinn maður leiksins og var með 21 stig, 12 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolna bolta og eitt varið skot. Hotshots spilar við annað hvort Blackwater eða Meralco í undanúrslitum sem hefjast á næstu dögum. 

 

Kristófer fékk mikið hrós í Filipseyskum fjölmiðlum, var valinn maður leiksins og fór í viðtal í sjónvarpinu eftir leik. Viðtal við hann má sjá hér að neðan:

 

Fréttir
- Auglýsing -