spot_img
HomeFréttirFjölnir semur við McCalle Feller

Fjölnir semur við McCalle Feller

Fjölniskonur munu leika með erlendan leikmann í 1. deild kvenna á komandi leiktíð og ætla sér greinilega stóra hluti. Fjölnir endaði í síðasta sæti 1. deildarinnar í fyrra en ljóst er að það á ekki að gerast aftur. 

 

Bakvörðurinn McCalle Feller hefur samið við Fjölni um að leika með liðinu á komandi tímabili. Hún lék með Montana háskólanum en heimasíða þeirra sagði frá þessu fyrir helgi. Hún var mest með 16,5 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili sínu fyrir liðið. Síðasta árið hefur hún unnið við fjölmiðla og þjálfað en stökk á tækifærið að spila á Íslandi á komandi tímabili.

 

"Ég veit ekkert hvað ég er að fara útí en ég er mjög spennt." hefur heimasíðan á eftir Feller um flutninginn til Íslands og bætti við: "Ég veit bara að við erum með svín á búningnum. Veit ekki enþá afhverju en ég veit bara að það er stórt svín á maganum." sagði Feller sem á þá væntanlega við Bónus auglýsinguna sem hefur verið á búningnum Fjölnis síðustu ár. 

 

Fyrsta deild kvenna hefst þann 30. september en Fjölnir hefur leik þann 1. október gegn nýliðum ÍR. 

 

Fréttir
- Auglýsing -