Dregið var í 32. liða úrslitum Maltbikars karla rétt í þessu. Leikirnir fara fram 14-16 október en 16 lið fara í næstu umferð. Tveir úrvalsdeildar slagir verða í þessari umferð.
Núverandi bikarmeistarar KR ferðast til Hvammstanga þar sem Kormákur mætir þeim. Nágrannaslagur Stjörnunnar og Hauka auk þess sem Breiðablik – Gnúpverjar verður áhugaverður leikur.
Liðin sem mætast í 32. liða úrslitum:
Stjarnan – Haukar
FSu – Grindavík
Hamar – ÍR
Njarðvík B – Skallagrímur
Sindri – Vestri
Haukar B – Þór Ak
Leiknir R – Njarðvík
Reynir S eða Stjarnan B – Fjölnir
Kormákur – KR
ÍA – Höttur
ÍB – Valur
Álftanes – Snæfell
Vestri B – KR B
Gnúpverjar – Breiðablik
Ármann eða KV – Keflavík
Tindastóll – Þór Þ




