spot_img
HomeFréttirÍR vann Reykjavíkurmótið - Stjarnan hafði betur gegn Grindavík

ÍR vann Reykjavíkurmótið – Stjarnan hafði betur gegn Grindavík

Tveir æfingaleikir fóru fram milli úrvalsdeildarliða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Stjarnan tók á móti Grindavík í Ásgarði í Garðabænum á meðan að ÍR-ingar fengu Valsmenn í heimsókn í Hertz-hellinn í Breiðholtinu.
 

ÍR-Valur

 

Í jöfnum og spennandi leik milli Reykjavíkurliðanna ÍR og Vals náðu ÍR-ingar að vinna leikinn 99-92. Þetta var leikur í Reykjavíkurmótinu svokallaða og með þessum sigri tryggði ÍR sér bikarinn í því. Fjölnir og Valur eiga eftir að spila leik á mótinu en sökum innbyrðis viðureigna geta þeir ekki orðið hærri en ÍR og teljast því Breiðhyltingarnir vera sigurvegarar mótsins.
 
 
Afmælisbarnið Matthías Orri Sigurðsson átti góðan leik með 22 stig og hann skoraði seinustu 5 stig liðs síns til að tryggja sigur. Aðrir atkvæðamiklir í heimaliðinu voru þeir Danero Thomas með 25 stig, Ryan Taylor með 24 stig og Sigurkarl Róbert Jóhannesson með 14 stig. Í liði Vals voru stigahæstir þeir Austin Bracey með 26 stig, Urald King með 20 stig og Siggarnir tveir (Sigurður Dagur og Sigurður Páll) voru með 13 og 11 stig.
 

Stjarnan-Grindavík

 
Í leik Stjörnunnar og Grindavíkur höfðu heimamenn betur, 79-72. Róbert Sigurðsson og Colin Pryor, Fjölnismennirnir fyrrverandi, byrjuðu leikinn vel og skoruðu 13 af 19 stigum Stjörnumanna í fyrsta leikhluta. Þeir tveir skiluðu samtals 28 stigum í öllum leiknum (18 frá Colin, 10 frá Róberti) og virðast vera búnir að finna sig í sóknarleik Garðbæinga. Byrjunarlið Grindvíkinga hafði hvorki Dag Kár né Ólaf Óla en samt náðu gestirnir að halda í við gestgjafana og fyrsta leikhluta lauk 19-18.
 
 
Annan leikhlutinn var jafn framan af, en Stjörnumenn nýttu góðum kafla hjá Tómasi Hilmari og Arnþóri (þeir skoruðu saman 10 stig í röð án stigs á móti frá Grindavík) og juku muninn í 7 stig fyrir hálfleik, 39-32.
 
 
Seinni hálfleikinn fóru Stjörnumenn strax vel af stað og skoruðu 10 stig áður en gestirnir náðu að svara með þristi frá Ingva Guðmunds. Of mörg mistök í sókn Grindvíkinga og góð nýting heimamann í leikhlutanum bættu gráu ofan á svart og leikurinn virtist búinn fyrir seinustu tíu mínúturnar, 60-42.
 
 
Grindvíkingar fóru loks í gang í fjórða leikhluta og Stjörnumenn kólnuðu aðeins sem varð til þess að þegar tæpar 2 mínútur voru eftir munaði aðeins nokkrum stigum á liðunum. Stjarnan náði hins vegar að halda kúlinu og kláraði leikinn 79-72.
 
 
Erlendur leikmaður Grindvíkinga, Rashad Whack, átti erfitt uppdráttar í leiknum, en hann skoraði aðeins 10 stig og lét fleygja sér úr leiknum í lokaleikhlutanum. Þegar stutt var eftir af leiknum fékk hann sína fjórðu villu sem hann kvartaði undan og uppskar tæknivillu sem varð hans fimmta villa og beint á bekkinn varð hann að fara. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Ísafjarðartröllið, átti fínan leik og varð stigahæstur hjá Grindavík með 14 stig, en fimm leikmenn þeirra gulklæddu skoruðu 10 stig eða meira. Hjá Stjörnunni skoruðu aðeins þrír leikmenn 10 stig eða meira, Tómas Þórður Hilmarsson var meðal þeirra, hann skoraði 13 stig og sýndi fína takta í leiknum.
 
 
Úrvalsdeildarliðin virðast ennþá vera að finna rétt spennustig fyrir upphaf tímabilsins, en fyrstu leikir Domino's deildar karla verða næsta fimmtudag og föstudag, 5. og 6. október.
 
 
Umfjöllun / Helgi Hrafn Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -