FIBA gaf í dag út styrkleikalista sinn. Listinn er tekinn saman eftir að allar álfurnar kláruðu sínar keppnir nú í haust, en eins og flestir vita þá fór Ísland alla leið á lokamót Evrópuhlutans. Liðin geta safnað stigum fyrir þennan lista á margvíslegan hátt, en kjósi fólk að kynna sér það eitthvað frekar þá er hægt að gera það í þessu skjali hér.
Fátt kemur á óvart í efstu tíu sætum listans. Staða fjögurra eftsu liða óbreytt, þar sem að Bandaríkin eru efst, Spánn í öðru, Serbía í því þriðja og Frakkland í fjórða.
Slóvenía er hástökkvari efstu tíu liðanna, en eftir sigur þeirra á lokamóti EuroBasket fara þeir upp um fimm sæti og í það sjöunda. Sæti neðar, í því áttunda, er Króatía, upp um þrjú sæti.
Ísland er í 47. sæti og fer upp um 37 sæti á listanum. Er með Svartfjallalandi það land sem sem stekkur næst mest upp á listanum. Aðeins Holland fer hærra á milli lista, en þeir fara upp um 38 sæti og eru sæti fyrir ofan Ísland í því 46.
Efstu 10:
1. Bandaríkin
2. Spánn
3. Serbía
4. Frakkland
5. Argentína
6. Litháen
7. Slóvenía
8. Króatía
9. Ástralía
10. Brasilía
47. Ísland




