Þrír leikir fóru fram í Dominos deild kvenna í kvöld. Allir voru þeir spennandi fram á lokamínúturnar. Í Kópavogi sigruðu nýliðar Breiðabliks Íslandsmeistara Keflavíkur, í Stykkishólmi sigruðu Haukar heimakonur í Snæfell og að Hlíðarenda hafði Valur sigur á Skallagrím.
Upphaflega átti að fara fram heil umferð í kvöld í deildinni, en þar sem að það vantaði heitt vatn í Njarðvík, var leik þeirra gegn Stjörnunni frestað til morguns.
Úrslit:
Dominos deild kvenna




