Önnur umferð Dominos deildar karla fer af stað í kvöld með fjórum leikjum. Tveir þeirra eru í beinni útsendingu. Nýliðar Vals taka á móti Tindastól, sem er í beinni á Tindastóll Tv og þá mæta Njarðvíkingar Þór í Þorlákshöfn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Heita vatnið er svo víst komið á í Ljónagryfjunni, en þar munu heimastúlkur taka á móti Stjörnunni í síðasta leik 3. umferðar Dominos deildar kvenna.
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Valur Tindastóll – kl.18:00 í beinni útsendingu Tindastóll Tv
ÍR Höttur – kl. 19:15
Grindavík Haukar – kl. 19:15
Þór Njarðvík – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Dominos deild kvenna:
Njarðvík Stjarnan – kl. 19:15
1. deild karla:
FSu Breiðablik – kl. 19:15




