Fjórir leikir fóru fram í Dominos deild karla í kvöld. Úrslit í þeim að mestu eftir bókinni þar sem að Tindastóll, Grindavík, ÍR og Njarðvík unnu sína leiki. Grindavík og ÍR því enn án taps í þessum fyrstu tveimur umferðum og þar af leiðandi við topp deildarinnar.
Þá fór fram síðasti leikur þriðju umferðar Dominos deildar kvenna þegar að Njarðvík tpaði fyrir Stjörnunni. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær, en var frestað vegna þess að það vantaði allt heitt vatn í Ljónagryfjuna.
Einn leikur fór fram í 1. deild karla. Breiðablik rétt hafði FSu í Iðu á Selfossi. Breiðablik því enn á toppi deildarinnar með þrjá sigurleiki og ekkert tap.
Úrslit kvöldsins
Dominos deild karla:
Dominos deild kvenna:
1. deild karla:




