HomeFréttir"Á landsvísu erum við ein fjölskylda"

“Á landsvísu erum við ein fjölskylda”

 

Leikmenn Tindastóls borguðu sig inn fyrir leik kvöldsins í Mustad Höllinni í Grindavík, en aðgangseyrir leiksins sem og aðgangseyrir kvennaleikja Grindavíkur og Þórs frá Akureyri um helgina mun renna óskiptur til styrktar fjölskyldu Magnúsar Andra Hjaltasonar sem var bráðkvaddur í vikunni.

Magnús Andri lést langt um aldur fram en hann var um árabil formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

 

Færsla Tindastóls:

 

Mynd / Facebook síða Tindastóls

Fréttir
- Auglýsing -