HomeFréttirTorsóttur Þórssigur gegn Ármanni

Torsóttur Þórssigur gegn Ármanni

 

,,Við vorum einhvern veginn  aldrei tilbúnar í þennan leik þannig að þetta kom okkur ekkert á óvart miðað við spilamennskuna hversu lágt stigaskorið var í dag. Í raun hefði þetta geta fallið hvoru megin sem var miðað við spilamennskuna hjá okkur“ sagði Helgi Rúnar þjálfari í leikslok og segja þau orð í raun allt sem segja þarf um leikinn.

 

 

Gangur leiks eftir leikhlutum: 10-10 / 13-10 7 15-8 / 21-20

 

Leikurinn fór jú rólega af stað og má segja aldrei komist á það flug sem menn vonuðust eftir og þótt lið Ármanns hafi aðeins mætt með einn skiptimann tókst Þórsstúlkum ekki að nýta sér þá stöðu á nokkurn hátt.

 

Þór skoraði fyrstu fjögur stig leiksins áður en gestirnir komust á blað eftir þriggja mínútna kafla var staðan jöfn 4-4. Lítið var skorað í leikhlutanum og staðan af honum loknum var jöfn 10-10.

 

Þór byrjaði annan leikhlutann ágætlega og um miðjan leikhlutann var Þór komið með 7 stiga forskot 23-16 og heldu nú menn að liðið væri búið að finna fjölina. Þá kom afleitur kafli hjá Þór þar sem slök hitni og vandræðagang í vörninni skoraði Þór aðeins eitt stig sem eftir lifði fyrri hálfleiks gegn fjórum gestanna. Staðan í hálfleik 23-20.

 

Fátt var um fína drætti framan af þriðja leikhluta en þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af fjórðungnum í stöðunni 30-27 small leikur Þórs saman og Þór skoraði 8-1 á lokaspretti leikhlutans. Þór vann leikhlutann 15-8 og leiddi með 8 stigum þegar fjórði leikhlutinn hófst.

 

Þótt ekki hafi körfuboltinn verið áferða fallegur á lokasprettinum komu þó kaflar þar sem Þórsliði náði að sýna sitt rétta andlit. Á tíma hafði Þór 19 stiga forskot 56-37 og virtist ætla skilja gestina eftir í rykmekki. En gestirnir voru á öðru máli en síðustu þrjár mínútur leiksins voru eign gestanna sem skoruðu 11-3 og munurinn komin niður í 11 stig þegar leiktíminn rann út. Lokatölur Þór 59 Ármann 48.

 

Þótt heilt yfir hafi leikur Þórs verið slakur og trúlega slakasti leikur liðsins í haust gerðu stelpurnar það sem þær í upphafi ætluðu sér þ.e. sigur. Þórsliðið var í hálfgerðu basli með leik sinn og voru liðsmenn duglegir að safna að sér villum og lenti Heiða Hlín snemma leiks í villuvandræðum og fékk sína 5 villu um miðja þriðja leikhluta. Þá voru þær Sædís og Unnur Lára tæpar þ.e. þær kræktu sér í fjórar villur hvor. Alls fengu leikmenn Þórs 28 villur gegn 17 gestanna.

 

Í liði Þórs var Helga Rut Hallgrímsdóttir stigahæst með 13 stig og 13 fráköst. Hrefna Ottósdóttir var með 11 stig 13 fráköst og 6 stoðsendingar. Unnur Lára var með 10 stig og 16 fráköst, Sædís og Heiða Hlín voru með 6 stig hvor, Kristín Halla 4 stig, Marta Bríet Aðalsteinsdóttir 3 og þær Gréta Rún, Særós og Árdís Eva með 2 stig hver.

 

Allir 12 leikmenn Þórs sem voru á skýrslu í dag fengu tækifæri í leiknum. 

 

Hjá gestunum var Stefanía Ósk með 14 stig og 8 fráköst, Arndís Þóra 11 stig, Jelena Tinna 10 stig og 7 fráköst, Arndís Úlla 9 stig og 13 fráköst, Bjarnfríður 4 stig og 13 fráköst.

 

Eftir sigurinn í dag eru Þór, Fjölnir og Grindavík í 2. – 4. sæti deildarinnar öll með 14 stig.

 

Myndasafn

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun, myndir, viðtal / Palli Jóh 

 

Viðtal:

Fréttir
- Auglýsing -