HomeFréttirFjölnir betri í Frystikistunni

Fjölnir betri í Frystikistunni

 

Þáttaskil

Þáttaskilin komu klárlega í lok 2. Leikhluta og þeim 3. þar sem FJölnir pressaði út um allan völl og vann 3. leikhlutann með 18 stigum (7-25) þar sem ekkert gekk hjá heimastúlkum.

 

Tölfræðin lýgur ekki

Stig eftir tapaða bolta (“turnover”) voru 23 hjá gestunum meðan Hamar var með 2 stig úr stolnum. Eins komu 32 stig af bekknum hjá Fjölni meðan breiddin var ekki eins góð hjá Hamri.  Jafnt var 27-27 þegar 7 mínútur voru búnar af 2.leikhluta en í hálfleik var 29-38 fyrir Fjölni.

Leikhlutarnir fóru; 15- 17, 14 – 21, 7 – 25, 19 – 9 og lokatölur því 55-72.

 

Kjarninn

Jafn leikur framan af þar sem Fjölnir bjóst kannski við léttum leik en heimastúlkur héldu í við þær gulklæddu nánast fram í tepásuna.  Helga Sóley var á 4 villum eftir pásu og munaði um það fyrir heimakonur meðan Fjölnir fann smjörþefinn af sigrinum rétt fyrir hlé og kláruðu í raun leikinn í 3. leikhlutanum. Kjarninn var góður hjá Fjölni og breyddin góð.

 

Góður dagur

Hjá öllum hjá Fjölni og sérstaklega var Berglind Karen með góðan leik á þeim 22 mínútum sem hús spilaði. Skilaði Berglind 14 framlagsstigum og 12 stigum skoruðum sem og að stela 4 boltum.

 

Slæmur dagur  

Nokkur atriði sem Hamarskonur þurfa að renna yfir en engin ein sem skar sig út úr hvað varðar slappan leik. Helst að Hamarskonur hafi saknað þeirra sem ekki komust í leikinn en þær sem mættu á parketið í dag börðust vel sem að endingu dugði þó skammt. f

 

Tölfræði leiks

 

 Umfjöllun / Anton Tómasson 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -