Maltbikarinn rúllar aftur af stað í dag en þá hefjast átta liða úrslit keppninnar. Eftir daginn í dag verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum kvenna ein einn leikur fer fram í átta liða úrslitum karla.
Í Keflavík fá bikarmeistararnir efsta liðið í 1. deild kvenna í heimsókn. Í Stykkishólmi er topplið Vals í heimsókn og Njarðvík freistar þess að halda bikardraumnum lifandi þegar liðið mætir Breiðablik. Þá fara ÍR-ingar í Borgarnes þar sem Skallagrímur tekur á móti þeim.
Stórleikur er í Maltbikar karla þegar topplið Hauka sækir Keflavík heim. Liðin mættust í Dominos deildinni fyrr í vetur þar sem Keflavík hafði betur á Ásvöllum.
Hvaða lið fer áfram í Bikarkeppni karla á eftir? #korfbolt
— Karfan.is (@Karfan_is) December 10, 2017
Alla leiki dagsins má finna hér að neðan:
Leikir dagsins:
Maltbikar kvenna – Átta liða úrslit:
Keflavík – KR kl 13:45
Snæfell – Valur kl 19:15
Njarðvík – Blix kl 19:15
Skallgrímur – ÍR kl 19:15
Maltbikar karla – Átta liða úrslit:
Keflavík – Haukar kl 16:00 í beinni á RÚV




