Snæfellsstúlkur tóku á móti valsstúlkum efsta liði Dominosdeildar kvenna í kvöld, en liðin höfðu áður mæst í Stykkishólmi þar sem Valsstúlkur höfðu betur 71-78. Þrjár af fystu fjórum körfum leiksins voru 3ja stiga og leiddu Snæfellsstúlkur 8-5 í upphafi áður en gestirnir hresstust með Hallveigu í fararbroddi.
Valur leiddu 11-14 og 16-21 en síðustu fimm stig leikhlutans voru Snæfells og staðan 21-21 eftir fyrsta leikhluta. Snæfellsstúlkur héldu áfram að skora og náðu í heildina 11-0 áhlaupi sem skilaði þeim 27-22 forystu.
Sveiflurnar héldu áfram og komust Valsstúlkur næst yfir 27-28 með hröðum leik. Valsstúlkur tóku hvert sóknarfrákastið á eftir öðru og nýttu sér það vel. Kristen McCarthy jafnar leikinn 31-31 og Guðbjörg og Hallveig koma Val yfir 31-37. Valsstúlkur héldu áfram að leiða leikinn og komust í 36-41 áður en Alda Leif smellti þrist um leið og lokaflautið gall, staðan 39-41 í hálfleik.
Rebekka Rán var stigahæst með 11 stig hjá Snæfell en Kristen var með 10.
Hjá Val var Hallveig stigahæst með 15 og Alexandra með 10.
Valsstúlkur komu ákveðnar til leiks á meðan Snæfell reyndu full erfiða hluti og komust í 41-50 sem var mesta forystan í leiknum. Eftir leikhlé Inga Þórs svöruðu Snæfellsstúlkur af krafti og komust yfir 56-55 og leiddu 59-57 eftir þrjá leikhluta.
Frákasta baráttan jafnaðist örlítið í þessum leikhluta og æsispennandi leikur í gangi. Ásta Júlía jafnaði fyrir val 59-59 en Alda Leif og Kristen komu Snæfell yfir 64-59 áður en Valsstúlkur jöfnuðu 67-67. Kristen stal boltanum og fékk víti að auki sem hún misnotaði og staðan 69-67 þegar að um 2 mínútur voru eftir.
Valsstúlkur sóttu grimmt á körfuna og komust yfir 69-71 með tveimur góðum körfum frá Alexi og Hallveigu. Kristen jafnar svo 71-71 með vinstri handar húkki spjaldið og niður. Kristrún skorar eftir laglega hreyfingu á lowpost 71-73 fyrir Val og rúm mínúta eftir af leiknum. Kristen jafnar leikinn með ævintýralegu vinstri handarskoti um leið og skotklukkan rennur út og staðan 73-73.
Valsstelpur halda í sókn með 33 sekúndur eftir af leiknum en Snæfellsvörnin nær að slá í boltann og Kristen er fyrst á boltann ásamt Elínu Sóley og dæmt uppkast. Örin á Snæfell og Darri þjálfari Vals tekur leikhlé. Snæfell halda í sókn þegar að 22 sekúndur voru eftir og sendir Kristen boltann á Berglindi sem fer í erfitt skot af endalínu en eftir klafs þá berst boltinn aftur til hennar og nær hún skoti sem fer ofan í á sama tíma og flautan gellur. Snæfell sigra 75-73 í æsispennandi leik og eru komnar í Laugardalshöllina í Janúar.
Snæfell eru því komnar í pottinn ásamt Keflavík, Skallagrím og Njarðvík en dregið er á þriðjudaginn.
Liðin mætast aftur næsta miðvikudag og þá í Dominosdeildinni í Valshöllinni að Hlíðarenda. Þar verður fróðlegt að sjá rimmu þessara liða.
Snæfell: Kristen Denise McCarthy 26/7 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 15/5 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 11/7 fráköst/8 stoðsendingar, Sara Diljá Sigurðardóttir 8, Alda Leif Jónsdóttir 7/4 fráköst, Júlia Scheving Steindórsdóttir 6, Anna Soffía Lárusdóttir 2, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 0, Inga Rósa Jónsdóttir 0, Thelma Lind Hinriksdóttir 0, Kristín Birna Sigfúsdóttir 0.
Valur: Hallveig Jónsdóttir 26/5 fráköst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 16/8 fráköst, Alexandra Petersen 16/8 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 8/13 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 4/5 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 2/4 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 1, Bylgja Sif Jónsdóttir 0, Kristín María Matthíasdóttir 0, Dagbjört Samúelsdóttir 0.
Myndasafn og tölfræði úr leiknum má finna hér að neðan:




